Sigrún Halla (f. 1979) útskrifaðist í Listfræði frá Háskóla Íslands árið 2011 og úr Textíldeild Myndlistaskólans í Reykjavík 2014. Hún er meðlimur í Sambandi íslenskra myndlistarmanna (SÍM), Textílfélaginu og Nordic Textile Art.
Teikning og þráður er útgangspunktur í verkum Sigrúnar Höllu, sem hún útfærir í textíl, málverk og skúlptúr. Forvitni, leikur og tilraunakennd nálgun við hefðbundna tækni og miðla einkennir vinnuferlið, þar sem innsæi og eiginleikar efnisins eiga í víxlverkandi samtali við hugmyndina. Abstrakt verk hennar dansa oft á jaðrinum hvað skilgreiningar varðar með lauslegum skírskotunum sínum til hlutveruleikans, á meðan efniskennd og sýnileiki handverksins myndar tengingar við sögu og samfélag og bjóða upp á hægláta, skynræna upplifun.
Sigrún Halla starfar við hönnun og leikmunagerð samhliða myndlistarstörfum og hefur verið virk í félagsstörfum og sýningahaldi síðustu ár.
Listaverk í Artóteki
- 37,5 x 27,5 cm / 40 x 30 cm með rammaVerð: 75.000Leiga: 4.000
- 37,5 x 27,5 cm / 40 x 30 cm með rammaVerð: 75.000Leiga: 4.000
- 36,5 x 26,5 cm / 40 x 30 cm með rammaVerð: 75.000Leiga: 4.000
- 40 x 30 cmVerð: 110.000Leiga: 4.000
- 40 x 30 cmVerð: 110.000Leiga: 4.000